Fallegar undirskálar fyrir bolla sem er einnig hægt að nota til þess að bera fram smákökur með kaffinu eða bara undir eitthvað fallegt. Greni er pressað í leirinn til þess að fá þetta fallega mynstur og svo málað með grænum lit.
Vinsamlegast hafið í huga að skálarnar eru handgerðar og handmálaðar. Hver skál er því einstök á sinn hátt, það á enginn eins skál og þú!
🌲❤️
Stærð:
Þvermál: 8-9 cm
Gott að vita:
Glerungurinn er blýlaus og ætlaður til gerðar á hlutum sem notaðir eru undir mat og drykki.
Best er að vaska hlutina upp í höndunum.